Til hamingju með daginn elsku Helgi Hrafn ....
Thursday, December 29, 2011
Friday, December 9, 2011
jólastússs...
í ár verða engin jólakort send út frá Háagerðissamsteypunni því miður... hef ekki neinnu , né tíma til þess og svo kostar 97 kr að senda eitt kort !!! hvursu eðlilegt er það í alvöru ?? en við komum kannski bara sterk inn að ári því ekki...En jólagjafirnar eru allar klárar, búin að kaupa allt,pakka, senda og bara eftir að opna :) þvílíkur léttir
er annars lélegri á öðrum sviðum... búin að baka 2 sortir og nenni ekki meira.. alveg lost í þessum bakstri enda finnst mér ekkert rosalega gaman að baka, er meira fyrir að borða kökurnar :)
en á eftir að skella í mömmukökur það er möst !!
eru þið ekki annars bara að njóta aðventunnar ?? við gerum það sko ,allir slakir hér :)
smá pæling varð við matarborðið í kvöld um grýlu og leppa lúða og jólaköttinn... Helgi þvertekur fyrir að þau séu til en hann segir jólasveinana til og það sagði Bella að það kæmi ekki annað til greina enda hefðu 2 af þeim mætt í leikskólann í vikunni á jólaballið ... skemmtilegar vangaveltur !!

Sunday, November 27, 2011
Helgarstúss.....
dásemleg helgi... ekki hægt að segja annað..
Föstudagskvöld matarboð á brekkugötu og allir meðlimir sem tilheyra þeirri fjölskyldu saman komnir sem ekki er svo oft ....við öll systkinin og makar og börn og ma og pa auðvitað...og Helgi gisti hjá ömmu og afa..Bellan kom í kósý með foreldrum sínum ..komu svo við gestir góðir sem ekki sjást svo oft bara tvö ein í kaupstað :) Laugardagurinn fór í laugabrauðsgerð en ætli við höfum ekki gert c.a 120 kökur !! besta laufabrauð í heimi vitaskuld... að hætti hefðarinnar var hangikjet og laufabrauðsafklippur um kvöldið á Brekkugötu...
í dag reyndi ég að vera dugleg og tók heimilið í gegn og breytti aðeins í stofunni enda búið að vera eins aaaaalllltof lengi :) Allar seríur sem einhverja hluta vegna fækkar of mikið á hverju ári komnar upp sem og jóladúkur og gardínur ég er svo gamaldags með jólagardínur :) Við börnin skelltum okkur aðeins út í góða veðrið í dag og renndum á sleða í snjónum , sem var bara hressandi !!! kertaljós,kaffibolli,piparkökur og afslappelsi ríkir nú í minni höll.... Ætla svo að skella mér í aðventustund með börnin í kvöld....
Húsbóndinn hefur í bókstaflegri merkingu verið á kafi í skít alla helgina og alveg misst af síðustu helgi í rjúpu en það skiptir engu við borðum hvort eð er ekki rjúpu á jólunum :)
Góða aðventu kæru vinir !!!

Wednesday, November 16, 2011
Yngst og Elst....
eins og Bogga langaamma heitin..... við vorum sumsé saman komnar elsta og yngsta barnabarn ömmu og afa (svona blóðtengd ef amalía er ekki tekin með í spilið þar sem hún er ári eldri en ég)
stjarnan á enninu á mér er í tilefni þess að ég var stjarna kvöldsins..... fnje fnje fnje :)
Þoka froka....
í þessari drungalegu þokufroku sem var í dag langaði mig helst af öllum að vera heima uppí sófa undir teppi við kertaljós og kósýheitt jafnvel splæsa mér í heitt súkkulaði og glápa á þætti !! í staðinn var ég svo sem ekkert á mjög svo verri stað :) ég var í vinnuni ..... afgreiða lyf og annað stöff.... tók upp jólagjapakkningar með allskonar fínum ilmum annaní... og bætti við nýjum ilmum í safnið okkar... og von er á enn meira fíneríi fljótlega
og sem og ENDURBÆTUM á búðinni...þess hlakka ég mest í heimi til !!! vonandi verður það allt til hins betra..
Annars styttist til jóla og er ég farin að huga að jólagjöfum og komin með hugmyndir fyrir flesta en það er mun betri árángur en oft áður hjá mér....Er í mestum vandræðum með börninn mín..svo margt margt í heiminum sem mig langar til að gefa þeim !!
hvað gefið þið ykkar börnum ????

Tuesday, November 15, 2011
15.nóvember....
... á sko afmæli í dag :) stimpilklukkan söng fyrir mig í morgun sem og fékk ég blóm og söng í vinnuna í viðurvist fullt af kúnnum...bara gaman að því ..roðnaði fyrir öll blómstrin :)
En takk kærlega fyrir allar kveðjurnar, smsin ,símtölin, komurnar og gjafirnar...
Eeeeelska að eiga afmæli :)

Monday, November 14, 2011
Helgin....
Helginni var eytt í rvk og var djammað þriðju helgina í röð ..alveg eðlilegt !!
Á föstudagskvöldið var árshátið grunnskólans sem var ofsalega skemmtileg en ekki hvað og má
segja að Helgi hafið farið á kostum :) Vorums svo komin til Rvk uppúr miðnætti ..
A laugardaginn var stefnan tekin á bíó... Börnin völdu Sveppamyndina... en ég náttúrulega pældi ekkert í því og fórum við ásamt Rósu og Hafsteini... En mín skellibjalla með litla hjartað var sko ekki að fíla þessa mynd !! ónei fljótlega eftir hlé fórum við bara og skoðuðum kringluna :) sú var hrædd og myndin að hennar mati alveg hræðileg !! mér fannst hún reyndar bara frekar fyndin það sem ég sá sko ...
Afmæli hjá Hödda Guðbjörns var um kvöldið, mikið stuð og mikil gleði og reyndi ég fyrir mér sem veislustjóri .. he hemmm... Endaði ég kvöldið á Spot á greifunum.... Höddi minn var að keppa í fótbolta..football and fun og gekk bara vel ..þeir enduðu á lokahófi , mat og fjöri..og niður í bæ...
Sunnudagur var þynnkudagur , kíktum reyndar í bröns hjá Þórdísi og Kevin McKidd , þar sem systkini HG og makar og börn og pabbi og fjóla voru líka... ekkert smá flott hjá þeim og kósý hjá þeim .
Næstu helgi er svo djamm fjórðu helgina í röð hjá mér hóst !!!! Jeminn ef það ætti ekki bara að panta snöggvast fyrir mig í meðferð !!! en næstu helgi er hittingur hjá apótekum Lyfju á norðurlandi vestra..
ég held að ég nái bara ekki upp þreytu eftir Glasgow nokkurntímann með þessu áframhaldi ...
Shit held ég sé farin að sofa ....þreyttist um heilan helling bara við að skrifa þetta !!!

Wednesday, November 9, 2011
heilaþoka....
hef verið illa haldin af heilaþoku síðan ég koma að utan..... mánudagurinn var mér sérstaklega erfiður !!! vá hvað maður getur verið eftir sig ...
í gær fórum við börnin á leiksýningu í félgasheimilinu, Allt í plati frá leikfélagi Sauðárkróks....skemmtu börnin sér rosalega vel !! (ég hefði verið til í að vera heima uppí sófa hó hó hó)
Stefnan er sett á krókinn á mrg í apótekara heimsókn og kíkja á blö í leiðinni.... svo árshátið svo rvk...
Brjalað sem það er alltaf að gera... og viss um það var eitthvað meira í vikunni....

Monday, November 7, 2011
Glasgow.......
var æðis...... Félagskapurinn beztur í heimi,....óendalega mikið hlegið ... mikið drukkið ...mikið verslað...reyndar var nú ekkert of létt verk að finna pöbba eða bjórsölur...en það aftraði okkur ekkert í að fá okkur einn jafnvel fleiri :) Aðeins djamm... he he fullt af skemmtilegum frösum liggja eftir helgina og verða ógleymanlegir !! klassíski
skotinn....Dú jú vont ða restí in ða bag....og dú jú vant seppreit belll ???? he he algerlega meiriháttar óskiljanlegir kauðar !!! En ég á sko eftir að lifa á þessum dögum ,,, eitt af því allra skemmtilegasta sem ég hef gert PÚNKTUR .....
Næst á dagskrá er árshátið hjá Helga Hrafni á föstudag , bruna suður strax um kvöldið , Höddi er að keppa í einhverju fótboltamóti allan daginn og við börnin ætlum að kíkja í búðir (því það er svo langt síðan ég fór sko ) og þau ætla að kaupa sér eitthvað fyrir afmælispeninginn sinn.... og svo ætlum við í bíó og svona kósý heit
svoafmæli til Hödda Frænda...óska eftir matar og kaffiboðum ;) nenni ekki meiri kentökkí ha ha ha....

Thursday, October 27, 2011
Vika til stefnu....
...og ég er ekki búin að skrifa lista... ég er búin að finna flugmiðann og vegabréfið..ekki búin að redda tösku .. veit ekkert hvað ég á að taka með mér..eða hvaða 5 hlutir verða fyrir valinu sko :) það verður allaveganna nánast tóm taska út... en það mun sko ekki verða á leið heim:)
Þetta er hótelið okkar :http://www.booking.com/hotel/gb/glasgow-central-apartments.en.html?label=socnet_fb_og_h_profile_oneline&aid=339528
Mjög flottar hótelíbúðir sem við verðum á..
En svo ætlum við nú í menningarferð til Edinburg í leiðinni sko ... og kíkja á einn og einn bar kannski...og
fá mér Starbucks... hlakka svona einna mest til þess !!! Gott kaffi
En þar sem við verðum i flugvélinni á sama tíma að viku liðinni þá hef ég aðeins eitt að segja
Bananabátskorsilettsslúðurssko tapils that´s not bad !!!!
En allavegann 6 dagar !!!jösssss
Þetta er hótelið okkar :http://www.booking.com/hotel/gb/glasgow-central-apartments.en.html?label=socnet_fb_og_h_profile_oneline&aid=339528
Mjög flottar hótelíbúðir sem við verðum á..
En svo ætlum við nú í menningarferð til Edinburg í leiðinni sko ... og kíkja á einn og einn bar kannski...og
fá mér Starbucks... hlakka svona einna mest til þess !!! Gott kaffi
En þar sem við verðum i flugvélinni á sama tíma að viku liðinni þá hef ég aðeins eitt að segja
Bananabátskorsilettsslúðurssko
En allavegann 6 dagar !!!jösssss
Tuesday, October 25, 2011
Bieber fever.....
já það ríkir svo sannarlega bíber fíver í Háagerði...Bellan alveg fallin fyrir drengnum... Öll helgin fór í gláp á youtube á myndbönd með kauða og uppgötvaði hún sér til mikillar gleði að hann er kominn með nýtt lag.....jólalag ....jeeeeeeesssss......þetta sumsé ómaði alla helgina að ég var orðin ónæm sko , svo þegar Höddi kom heim á sunnudagskvöld eftir helgardvöl í langtíburtukistan þá fékk hann sko að heyra nýja justin lagið ..jólalagið honum til mikillar gleði :) Hann segir svo við dóttur sína... hvað ert þú eiginlega gömul Ísbella mín svona með mæðutón...Hún lítur á hann hneyksluð..."veistu það ekki ? , ég er 5 ára" Höddi segir þá njahh veistu ég er farin að efast....Hún ríkur þá uppí herbergi , kemur aftur niður með 5 ára kórónuna sína frá afmælinu um daginn og segir "sjáðu bara" Hér stendur Ísabella 5.ára :)
Monday, October 24, 2011
Glasgow.......
Loksins Loksins Loksins get ég sagt að ég fari í menningar og skemmtiferð til Glasgow í næstu viku!!! þó ég sé búin að vera þar síðustu daga...labbandi um götur í leit að búðum og kráum og hóteli og svona... gaman að google maps :)
~~~~~
Annars liggur við að maður sé hálf eftir sig eftir letihelgina ...tekur á að vera hundlatur sko :)

Saturday, October 22, 2011
Letihelgi...
Alger leti helgi í gangi í Háa... Húsbóndinn farin á námskeið í langtíburtukistan og við hin heim að slaka á meðan... þið vitið sund, baka, borða, sofa... pínu sumarbústaðarfílingur,.,,, gripið í spil og svona !! totally yndis...
Annars er talið niður í Glasgow ... jerimías hvað ég hlakka til !! sma auka sumarfrí þar sem mitt var alveg með endemum stutt í ár !! En hef lúmskan grun um að það verði ekki kannski svo mikið slakað samt ef ég þekki ferðafélaga mína rétt :)

Thursday, September 15, 2011
Thursday, June 16, 2011
Leikhópurinn Lotta á Hvammstanga
Við fórum í gær í fimbulkulda og norðanátt en ekki hvað ...það myndi nú teljast til tíðinda ef að norðanáttin hefið ekki verið til staðar.... en mikið rosalega var gaman og börnin kát... Bellan knúsaði Mjallhvít eftir sýningu eins og svo mörg börn ... hér er svo smá myndashow frá sýningunni :)
Monday, June 13, 2011
Hvítasunnan senn á enda...
...og miiiiiiiiiiiiiikið sem þessi helgi var skemmtileg,frábær og algerlega tímabær og nauðsynleg !!!!
við píurnar vorum sem sagt saman alla helgina ,við Sandra lögðum af stað á föstudagseftirmiðdag og komum heim í gærkveldi...endurnærðar á sál og líkama!! Út að borða á Ítaliu, tónleikar með Búðabandinu á Prikinu,bæjarrölt,jógatími hjá Ástu,búðarrölt,grillað,frönsk a´la Ásta og ís,bíóferð á Bridesmaids(sem var æði,brjálaðislega fyndin,mæli sko með henni) bæjarrúntur,sofa út,borða endalaust mikið gott, hvítvínssötur, Piknik og Kubb í grasagarðinu í góða veðrinu á sunnudeginum,sól og blíða og 17 stiga hiti, Nauthólsvík að tana og vaða, :) ohhh þetta var bara allt svo yndislegt... Takk kærlega fyrir helgina elsku vinkonur !!!
Þessi svangi fugl vappaði í kringum okkur í grasagarðinum í ætisleit....

Tuesday, June 7, 2011
Fréttir vikunnar
já ætli það sé nú ekki stóra sjómannadagsmálið á Hvammstanga !!! Finn alveg ofsalega til með þeim tveimur sem biðu í sjónum,annar þeirra er jú bróðir minn !! allir vita jú hvernig þetta var, en mér finnst ekki sniðugt að svona mál er komið í fjölmiðla um leið og það gerist..varla hægt að vara ættingja við !! En nóg um þetta ..Sem betur fór betur en áhorfðist ... Minn bróðir er hetja í mínum augum fyrir að halda ró sinni og sinna fjölmiðlum af stóískri ró !!
En nóg um það .....
í Háagerði er komin nýr meðlimur...afskaplega fallegur kettlingur af nafni Brandur ... hann spjallar/vælir stanslaust... eins og þegar hann er einn heima og maður kemur heim þá er eins og hann sé að láta mann heyra það...horfir stíft á mann og mjálmar og mjálmar..og vill svo láta halda á sér og knúsa :) æji þessi krútt , svo eftir 3 vikur kemur gula læðan sem við erum líka búin að panta...hana vantar nafn ef einhver lumar á góðri hugmynd eitthvað sem er í stíl við Brandur án þess þó að vera Branda :)
Um helgina fer húsmóðirin í Háagerði í langþráð húsmæðraorlof !!! jihhhh hvað ég hlakka til ... Dekurhelgi með vinkonum í höfuðborginni.....

Wednesday, June 1, 2011
Elskar frídaga...
...og hver gerir það ekki.... ég spyr.. en allar busy á mínum bæ líkt og alltaf... Helgi hangsar enda skólinn löngu búin...Bellan fer seint í leikskólann enda komin pínu þreyta í mína konu ...Höddi sést aldrei heima... og ég svo sem eiginlega ekki heldur.. Höddi er byrjaður í sumarvinnunni sinni...bændastörfum lokið þetta vorið.
Ég fer í sumarfrí í júlí þegar leikskólinn lokar ...og eiginlega er ég farin að telja niður dagana... er orðin frekar þreytt verð ég að viðurkenna !!
ég skellti mér í Zumbað sem er hér í vikunni ...og mikið sem þetta er skemmtilegt .. vildi svo óska þess að komast í zumba svona 3x í viku,... einhverra hluta vegna er þetta til í tölvunni minni og er alveg spurning um að fara að geysast um stofugólf og Zumba... því ekki :) í kvöld förum við í Battle í Zumba... verður gaman
og svo er Bjútíshittingur á eftir,,,sem er bara awesome þar sem aaaaaaaaaaaaaaalof lagnt er síðan síðast sko ...
En frídagur á morgun..jibbíkóla !!

Sunday, May 29, 2011
Sunnudagur.... næstum letidagur...
Háagerðisfjölskyldan er nú sameinuð á ný.... mikið var dásamlegt að hitta börnin sín aftur á föstudaginn ,þetta voru nú samt bara 6 dagar og alveg höfðum við nóg að gera á þeim tíma en vá !! þau voru auðvitað alsæl með dvölina hjá Ásu og Helga Svan..dekrað við þau í bak og fyrir náttúrulega...Elsku Ásan mín og Helgi ástarþakkir fyrir börnin , þið björguðuð okkur alveg mega !!!! númm við grilluðum í Hvassó við komuna með turtildúfunum Ásu og Helga og afa Jóni...dásemdar lamb og eitt af betri kartöflusallötum sem ég hef smakkað... nú er ég komin með æði fyrir því !! Á laugardeginum var tekin góður fjölskyldagur... Sund um morgunin í einni af uppáhaldslaugunum okkar...Kópavogslaug... og svo þaðan beint í burger á Hamborgarabúllunni (já búlluni ekki farbrikkuni) og það sem hann var suddalega næs...Helgi Hrafn hrósaði stráknum er kokkaði í bak og fyrir og sá maður að hann kunni virkilega að meta það..númm þaðan beint í 25 ára afmælisteiti 365 miðla í fjölskyldu og húsdýragarðinn... þvílík og önnur eins mannmergð..enda veðrið dásemd..að vera á stuttbuxm og ermalausum bol sko ...settumst og sáum skoppu og skrítlu og latabæ og aðeins Jóhönnu Guðrúnu,,, fórum svo í ís og skoða dýr...þegar við erum svo að ganga að bílnum fer að dropa og svo hellirigna þegar við erum komin af stað ,.. múhahahahah gott á hina sem eftir voru ..he he djók en við vorum fegin að vera farin.. hefði heimsótt alla sem ég þekki í rvk hefði ég haft tíma en sorry hann var ekki til núna því miður elskurnar mínarr...ekki vera fúl...reyndi þó að heimsækja eina vinkonu mína en það hafiðst ekki ... annars erum við svo bara komin heim í sældina... Bella í afmæli i dag og Helgi með vin sinn í heimsókn ,,Höddi farin á sitt ananð heimili og ég reyni að klára forstofuna mína...vildi að ég hefði tekið fyrir / eftir mynd en það gerði ég ekki...
Svona er lífið í Háagerði í dag...
Svona er lífið í Háagerði í dag...
Friday, May 27, 2011
Jíbbí kóla....
allt gleðilegt í dag :) vikan búin,helgarfrí,mánuðurinn að verða búin,sumarið að koma,búin að mála forstofuna,
líklega búin að fá rúm fyrir Belluna...og svo og svo náum við í börnin okkar í dag.... það sem við erum búin að sakna þeirra !!! við nutum þó aðeins í gær ,skruppum í sund og í heimsókn til fólks um kvöld án barna :)
það er sjaldgæft...alltof sjaldgæft .. Annars er ég oggupoggupinkupons farin að þrá sumarfrí og garðvinnu... ég er samt með mjög svo ógræna putta en ég reyni að gera mitt bezta í garðinum..og alveg sama hvað mér finnst ég þræææææææla mér út þar ...þá er eitthvað minna um árangur :) en við ætlum svo sem líklega alltaf að búa í Háagerði svo ekkert liggur á...góðir hlutir gerast hægt skal ég ykkur segja....
En helgarplön....ná í börn,fara í fjölskyldu og húsdýragarðinn á stöð 2 fjölskylduhátíðina á morgun...fara heim...klára forstofuna (svo nú þegar þið komið heim til mín þá mætir ykkur ekki fjall af skóm og úlpum og vettlingum fljúgandi....eða ég vona ekki) og svo er spurning um að kíkja á þessa tvo kettlinga sem við ætlum að fá okkur ...já æji já ...það á svo eftir að segja börnunum frá andláti Dóru...ohh kvíði kvíð !!
Heyriði fyrst ég er að tala um forstofuna....veit einhver snillingur hvort hægt er að mála flísar..gólfflísar ?? er til eitthvurt gólfflísalakk ???
Annars njótið helgarinnar ljúfu lesendur Háagerðisfjölskyldubloggsins :)

Wednesday, May 25, 2011
...það varð aldrei það vont veður að það skánaði ekki aftur....
Gríðarleg speki í Gurrý :)
Veðrið varð betra sem betur fer.... kindur og lambfé komið út aftur og gos að hætta og börnin hætt að vera innilokuð á Selfossi :)
Annars gerðist eitt afar sorglegt hjá okkur fjölskyldunni í Háagerði í gær....Það var keyrt á hana Dóru okkar og er hún dáin :/ ohh hvað ég á bágt með mig þegar þessi dýr okkar deyja.... það versta er að við eigum eftir að segja börnunum okkar þetta...ætlum ekki að skemma fyrir þeim dvölina fyrir sunnan með þessum sorgarfregnum :/ jihhh hvað þau verða sorgmædd.... EN ég er með allar klær úti og er að reyna að finna nýja kisu og í þetta sinn ætla ég að taka tvo kettlinga... læðu og högna...úff hvað ég nenni nú samt að byrja strax aftur á kettlingauppeldi en hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín...
Elsku litla Dóran okkar nýkomin í Háagerði í febrúar ....ohh hennar verður sko sárt saknað..svo yndisleg og ljúf og kelin.... Monday, May 23, 2011
úff þetta vor....
þetta er bara of sorglegt vor...vona svo sannarlega að sumarið verði okkur betra... Börnin mín eru sumsé í góðu yfirlæti á Selfossi ..komast bara ekki út enn sem komið er , það lagast vonandi.
Númm svo er þetta ekkert smá álag fyrir bændur hvort sem þeir búa norðanlands eða sunnanlands (já og austan og vestan og allsstaðar)þó að þeir fyrir sunnan hafi það ansi meira skítt.... í dag til dæmis skaust ég útí sveit og þá hafði verið nýbúið að henda út fyrir vegg og þeim sem voru út fyrir vegg lengra út á tún... þetta var sumsé fljótlega leiðrétt aftur... því veðrið var bara ansi skítt í dag....
þetta eru svo lömbin okkar fallegu.... gimbrin Bella og hrúturinn Helgi...ofsalega falleg lömg þó ég segji sjálf frá :) annars líður skrokknum mínum jafn illa í dag og veðrinu :/ þessi kuldi fer bara ansi hreint ílla í Gurrý :/
ég þarf hita og sumar og sól strax takk !!!

Sunday, May 22, 2011
Helgin
já hún er nú víst á enda runnin blessuð helgin...Ýmislegt gerðist,ýmislegt gerðist ekki og ýmislegt gerðist sem hefði ekki átt að gerast....
Við byrjuðum helgina hjónin í rollurassi...eða svo gott sem :) Sauðburðarlíf á Sauðadalsá ,Höddi svo sem búin að vera þar meira og minna í 3 vikur en ég eitthvað minna,en átti frí á föstudaginn og hvar var betra að eyða fríinu ...númm á föstudaginn var einnig vorhátíð í grunnskólanum og kíktum við á það ásamt Belluni..svo var haldið suður á bóginn.Stoppuðum í Borganesi,kíktum í nettó og ríkið og borðuðum í sjoppu...Höddi var svo að spila leik um kvöldið með Kormáki en við börnin skruppum í sund.Þar gerðust undur og stórmerki í nístingskulda...Bellan þorði í rennibraut en það er eitthvað sem hún kýs að forðast líkt og pestina...í Borganesi er c.a 4-5 metra held ég svona bein gul breið braut og hún ákvað þarna að nú væri komið að því að þora... sem þýddi að ég þurfti að þora líka því hún fór ekki ein sko :/ ohhh ég lét mig nú hafa það enda bein braut en kuldinn...birrrr... ég fór því nokkrar ferðir og Helgi með okkur ...svo kom að því að hún þorði að fara bara með Helga...svo þorði hún ein með kúta og svo fór hún loks ein með enga kúta ...þvílíkur sigur fyrir eina 4 og hálfs árs dömu(takið eftir 4 og hálfs hún minnir sko á að hún er 4 og hálfs ef ég voga mér að kynna hana sem 4 ára!!! )
Númm eftir leikinn sem fór by the way 3-3 ...(Höddi klúðraði víti,lét sko verja frá sér...)
fórum við loks alla leið suður í Hvassó en þar vorum við ekki lent fyrr en um kl 22:30 .Tilgangur ferðarinn var sumsé að fara í útskriftina hennar Ásu okkar en hún var að klára stúdent og sjúkraliðann og erum við afar stolt af dósinni okkar :) Til hamingju aftur elsku Ásan okkar..lov jú
Á laugardagsmorgninum fórum við aftur í sund í uppáhaldslaugina okkar í Kópavogi... Þar fór Bellan sko í rennibrautina gulu þar...(hún elskar gular rennibrautir) fyrst þurfti ég með en það var bara ein ferð og ekki kalt enda awesome veður í kópavogi (það er gott að synda í kópavogi)
á leiðinni úr sundinu komum við ,við í rúmfó og keyptum útileikdót(skóflur og fötur og svona eitthvað) enda allt eiginlega brotið og bramlað sem þau áttu...
Veislan var svo í Hvassó eftir hádegið... við Höddi drifum okkur svo heim seinnipartinn enda ég að fara á næturvakt og Höddi í aðra útskrift sem okkur var boðið í hér á Hvammstanga....
Höddi fór svo á Sauðadalsá aftur á sunnudeginum og ég aftur á næturvakt...þið kynnuð að vera farin að velta fyrir ykkur hvar börnin skyldu vera niðurkomin ...númm þau urðu eftir í reykjavík og verða hjá Ásu frænku og Helga í viku.... á Selfossi... ég fékk nú nettann hnútí magan í dag...ungur drengur druknaði í sundlaug á Selfossi og eldgos... ohh ömurlegt og mömmuhjartað frekar brostið eitthvað....
vonandi þurfa þau ekki að dúsa inni í viku vegna öskufalls.....
en svona var nú helgin okkar .... engar myndir í þetta sinnið.... á enga myndavél :/

lífið snýst hringi....
já mikið til í því ekki satt.... og er ekki bara blogg að detta inn aftur... það myndi mig gruna
sjáum til...
sjáum til...
Subscribe to:
Comments (Atom)