Hrafnhildur Ísabella stelpurófan okkar er fimm ára og á Hún er fædd þann 5.október 2006.Hún er á síðasta ári í leikskóla...og hana hlakkar sko mikið til að vera í elsta hópnum og er komin á fullt í að undirbúa skólann,er í skólahóp /vinnustund og hefur svo farið að heimsækja grunnskólann með bekknum sínum verðandi 2svar ... svo ég tali nú ekki um að byrja í skóla eins og Helgi :) Hún er svakalega lík pabba sínum í útliti og svo líka föðurömmu sinni og föðursystir... hún er með skap þessi elska :) Hennar helsta ástríða er tónlist og dans og fimleikar.Hún ætlar sko að æfa fimmleika næsta vetur og er komin með fimleikabol sko !!
Hún er allan daginn í splitti ,syngja og dansa við lög á youtube,all the single ladies er sko uppáhald !!
Hún er alger pæja...elskar föt og skó og punterí og dúkkur og svona almennt stelpustöff og allt sem er bleikt :) Hún er líka ofsalega góð við bróður sinn ,þau eru svo góð systkini.