Wednesday, April 11, 2012

Páskafríið....

...það má með sanni segja því hafi verið tekið fagnandi páskafríinu í ár í Háagerði...í fyrsta lagi þá er þetta fyrsta páskarfrí frúarinnar í mörg ár en ég hef hingað til verið á næturvöktum á sjúkrahúsinu, svo þetta var mikið gleði efni. verst að þetta er líklega fyrsta og eina sinni en það er 0nnur saga.... Börnin voru líka farin að þrá kærkomna daga í að vera með foreldrum sínum og slaka á og hlaða batteríin.... Hödd hann hafði gott af þessu líka !! þó hann hafi reyndar tekið lionsblómaliljurósasölu á miðvikudag og fimmtudag en þá hefur hann bara gaman að því... kíkti á vantsnesið með blóm og hætti er þau kláruðust.... kíkja í bændaheimsóknir og svona í leiðinni og taka stöðuna fyrir sauðburð og annað svona bændaspjall!! börnin fengu að fljóta með meðan frúin í Háa fór hamförum og breytti herbergjaskipan á eftir hæð, gleymdi bara að gera salernisaðstoðuna !! geri það næst þegar ég bygg yfir svalirnar !! ha ha ha
svo nu sefur ekki lengur neinn á sama stað nema kettirnir komast næstir þvi ...númm ég tók líka leti dag, við vorum með 3 matarboð og 1 kaffi boð , fegnum líka 1 matarboð og 1 kaffi boð...svo við misstum ekki hvorki úr hátíðarmáltíð né nokkurt gramm um páskana !! svo var endað á óhóflegu súkkulaði áti eftir að eggin fundust en það ávalt afar mikið spenna hvar þau eru falin og reyna að leysa vísbendingarnar !! Höddi sér um það...
Hitti elsku Aldísi mina slatta þó það hefði alltaf verið hægt að hittast miera... tókum sund, tókum göngutúr og enduðum svo á að fara í sveitina góðu og gista og fá meira gott að borða og kíkja í fjárhúsini á okkar kindur sem og júlla kóng, en hann er fyrsta lambið sem fæddist !! Eldri kindin okkar heitir botna eins og oft hefur komið fram en gemlingurinn er nafnlaus greyjið,Helló kittý hefur komið upp en Helgi er ekki par hrifin af þeirri hugmynd svo þetta hefur verið saltað um tíma.....
En ljúft var páskafríið með góðu veðri og með góðu fólki !!! Hafsteinn var líka alla páskana svo krakkarnir léku saman alla páskana !! það er ávalt vel !!
Vonandi höfðuð þið það líka gott !!  nú er það bara ávextir og grænmeti eftir allt þetta át .....
þessi krútt fengu þessi flottu egg frá ömmu og af a á brekkugötunni degi fyrir páskadag,... og nutu sko vel !!!

Sunday, April 1, 2012

Helgarupprifjun...

....3ja helgin í röð sem við förum suður á bógin... og sorry þið falllega fólk sem við höfum ekki heimsótt sem eru  allir sem ég þekki í rvk svæðinu.... í gær skruppum við sumsé suður í fermingarveislu Helgu Rakelar frænku okkar , sem er dóttir Rebekku hans jóns hennar jóhönnu sem er mamma hans hödda :)
Glæsileg var stúlkan í afar fallegum kjól og veislan hin bezta...

við fórum sumsé bara fram og til baka ekkert stopp núna enda höddi búin að vera að vinna alla vikuna að mer finnst niður á bryggju að landa áburði úr skipi og var ekki búin fyrr en kl 04 aðfaranótt laugardags...
svo við vorum ekki í stuði að vera lengur í rvk heldur drifum okkur heim enda Bjútís líka að hittast um kvöldið og ekki mátti ég hugsa til þess að missa af þeim fíbblagangshitttingi...sem stóð heldur lengur en ég hafði heilsu til :) og dagurinn í dag sumsé alveg í rugli !!! en það er að koma páskafrí... Helgi Hrafn er komin í páskafrí og verður í dúlleríi með ömmu sinni og Hafsteini þangað til að við hin komustum í frí !!
Við Bellan kíktum líka á hestasýningu á föstudagskvöldið uppí reiðhöll...mörg skemmtileg atriði en mörg hefðu mátt bara vera saman í einu atriði  ;) svona fyrir vittleysing eins og mig sem skilur ekkert í hágengu hrossi og hálfmerum og klárhrossum.. þó glæsileg væru hrossin sem og knapar þeirra hefði ég alveg geta horft á þessi ræktunarbú í einu atriði... hlaupa hring eftir hring... en þetta er bara mín skoðun og þarf ekki að endurspegla skoðun annara...



Sunday, March 25, 2012

Helgin.....

fórum suður á helginni ,... og aðalástæðan var nú að fara til að vera viðstödd er þessi flotti frændi
minn myndi ganga að altari og fermast !!sem hann og gerði með glæsibrag og telst því samkæmt í fullorðinna 
manna tölu ekki satt...veislan heppnaði afar vel , það var frábær matur og frábært fólk í veislunni...

Sæþór Atli Fermingardrengurinn

Fallega fjölskyldan !!!

Helgi fann sitt uppháld í veislunni.... fræinn eða hvað þetta
kallast innan úr granateplum !!! hann fékk að lokum fullan disk
bara með þessu stöff i!!! spes gæji...



Svo hittum við vissulega Afa jón og ömmu jóhönnu og 
eriku og sissa og ingimar og önnu og síðan enn alls ekki síst
asu og helga,,,svo vara sko fjör í hvassó ekki annað hægt að segja !!
sungið dansað og spilað á gítar og svoan !!
Sá Aldsísi mín í mýflugumynd(hún er á einhvejur mýflugnakúr)
En annars var ég í smáralind með börnin mín og Boggu og hennar börnum hittum Rósu
sys aðeins þar.... en ég kláraði mánaðrlaunin mín bara á einum degi ...bíó og skemmtigarðuinn og er er broke :) en þau skemmtu sér konunglega !!! klessubílar og svona
fórum svo á alvin og íkornana í bíó...mikið stuð og mikið gaman...
ég var sumsé þannig séð ein með börnin og engan bíl og lítinn tima þannig að 
ég gat ekki heimsótt neina...það verður fljótlega ég lofa...eða þið komið norður til mín :)

allaveganna erilsamri en góðri helgi að ljúka 



Sunday, March 18, 2012

Helgi & ísabella

....ef að þið klikkið á nafnið þeirra hér til vinstri þá er hægt að lesa smá fróðleik um þessr elskur  !!!

Ísabella og Helgi á jólunum s.l

...af hverju get ég ekki ...verið dugleri að blogga (lesist við lagið rangur maður)

...Tilgangurinn með þessari bloggsíður er ekki alveg útpældur ... en finn samt einhverja þörf hjá mér að eiga blogg og blogga annað vefið um ekki neitt !!!
En um helgina fórum við hjónin með Lionsklúbbnum Bjarma í reisu alla leið á suðurland, og voru nánar tiltekið í Vatnsholti sem er dásemdarstaður !! flott herbergi , notalegt rúm ,dásemdar morgunverðarhlaðborð, RISA stórar feldkanínur sú stærsta sem ég hef á æfinni séð...líklega ljótasi hundur sem ég hef seð var þarna líka
og svo fórum við á laugardeginum í rútutúristaferð um flóann ... fórum í forsæti á safn þar sem heitir tré og list og marg fallegra muna þar , og svo fórum við a stokkseyrarbakka og á Veiðsafn og eins og nafnið bendir helst til þá datt manni í hug veiðistangir og hjól og spúnar og uppstoppaðir fuglar kannski og svona eitthvað dótarí en sú var nú alls ekki raunin !! Veiðisafnið á Páll Reynisson skytta og hann býr á safninu þetta er hans heimili...Risa stór söfn , eða 2 stofur, stofan og betri stofan eins og Páll kallar þær. Páll þessi er þarna með uppstoppur dýr sem hann hefur að stórum hluta veitt sjálfur og við erum að tala um Gírafa,ljón,Sauðnaut,antilópur,sebrahest,böffalaóa og allan fjandann og hann hefur borðar allt kjötið af þessum dýrum !! og hann sagði svo skemmtilega frá, ekkert kjaftæði og við hvert dýr er mynd af honum með dýrinu dauðu og með þeirri byssu sem það var fellt með . ..þetta var svona þennan gíraffa veiddi ég þarna og með þessari byssu þarna(bendir á byssu í læstum glerskap)  og segir okkur svo hversu gott / vont kjötið var á hverju dýri...Honum Páli fanns kjötið á sauðnautinu sem hann veiddi á Grænlandi það allra besta kjöt sem hann hafði smakkað !!! En nógum það og hann Pál en ég hvet alla sem eiga leið um suðurland í sumar jafnvel að gefa sér tima og stoppa hjá Páli og skoða þetta frábæra safn, það eru um 6-7 dýr í víbót á leiðinni sem eru í uppstoppun meðal annars krókódíll og strútur og að ég held nashyrningur og fleiri... ég ætla allavegana pottþétt að fara með krakkana þarna !!
nú svo stoppuðum við í snarli hjá Guðmundi og Guðrúnu konu hans en fyrir þá sem kveikja ekki þá var Guðmundur hér sveitastjóri um hríð...bjuggu hér ásamt börnum sínum,Jónasi,Annie,Siggu Dögg og Magnúsi.
Hittum einmitt Annie sem var hjá þeim til að aðstoða við veitingarnar sem brjálað lið að norðan var að rífa í sig :) Guðmundur er í Lions á selfossi og var farastjóri okkar á laugardeginum ! svo var okkur sleptt lausum á Vatnsholti og fengum þar afar ljúffenga 3ja rétta máltið ..og svo var bara fjör fjör fjör !!! Myndirnar myndu tala sínu máli ...nema ég ætla ekki að setja þær hér inn svo sorrý :)

Börnin okkar voru í aldeilis góðu yfirlæti  hjá Ásu frænku sinni og Helga Svan á Selfossi á meðan í dekri !!

Wednesday, February 29, 2012

Risa Lagersala og ZippFizz.....



Risa Risa Risa LaGeRsAla
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
á Glerlist Rósu Breiðfjörð Marteinsdóttur
LAUGARDAGINN 3.MARS KL 14-17
HVAMMSTANGABRAUT 7 (hjá hödda og helgu)
..allar vörur á hlægjilegu verði....
Hér fyrir neðan eru nokkur sýnishorn af því sem RB hefur gert....
1. 2. 3.
1.Skemmtilegt hvað hægt er að nota svona bakka á marga vegu, 2. þetta listaverk gerði hún á vegg eftir pöntun
3. Aðventukrans


~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Á sama stað á sömu stundu verður einnig hægt að kaupa og smakka nýjan vítamín drykk...
Við erum auðvitað að tala um ZippFizz vítamíndrykkinn
     Verð 400kr túpan,20 stk á 7500 kr
Um ZippFizz : ZipFizz er frábær orkudrykkur sem inniheldur öll vítamín sem við þurfum og steinefni. Frábær orka og enginn sykur.
-Blandar þetta í ca 600ml af vatni.
Virkar frábærlega fyrir þá sem þjást oft að hausverk, orkuleysi, sinadráttum, eru í læknismeðferðum,stunda íþróttir og þess háttar.
9 Vítamín: Vítamín C, E, allt Bs, og fólínsýru
8 Steinefni: kalíum, magnesíum, kalsíum, sink, selen, mangan, króm, natríum
AMÍNÓSÝRUR
Andoxunarefni: grænt te þykkni, vítamín C og E.

Allar nánari upplýsinar veitir 
Helga Marteinsd í síma 899-4658