Tuesday, November 20, 2012

Kaffi Kandís


Litli jólabasarinn okkar á heilbrigðisstofnun vesturlands á hvammstanga verður á sjúkrahúsinu okkar næsta fimmtudag , 22 nóv, um leið verður opið á kaffihúsinu okkar sem hefur fengið nafnið Kaffi Kandís, kaffi og smákökur verða selda að þessu tilefni á 500 kr fyrir 14 ára og eldri...svo verður vissulega líka kandís í boði :) Endilega kíkjið við , kíkjið á handverkið hjá "gömlunum okkar" og fáið ykkur kaffisopa með þeim.. svo kósý á kaffi Kandís ,svo erum að gera að rolta um stofnunina og skoða, aðstöðu heimilisfólks og dagvistarfólks, smiðjan og föndurstofan , setustofa uppi og niðri og og heilsa upp á fólkið okkar sem eeeeeeeeeeeelskar að fá gesti stóra sem smáa :) Opið verður frá kl 14-17...á kaffi kandís dettur þú inn í gamla tímann... gamlir sófar,stólar ,bollar ,könnur ,skálar og allskonar gamalt fínerí í toppstandi og gaman að sjá hverjir hafa gefið og lánað hlutina í flotta kaffihúsið !! heimilisfólkið sem og við starfsfólkið erum auðvitað afar montinn með þetta, og enn skemmtilegra er þegar við fáum gesti !!! 

Láttu endilega sjá þig :)

 

No comments:

Post a Comment