Thursday, October 27, 2011

Vika til stefnu....

...og ég er ekki búin að skrifa lista... ég er búin að finna flugmiðann og vegabréfið..ekki búin að redda tösku .. veit ekkert hvað ég á að taka með  mér..eða hvaða 5 hlutir verða fyrir valinu sko :) það verður allaveganna nánast tóm taska út... en það mun sko ekki verða á leið heim:)
Þetta er hótelið okkar :http://www.booking.com/hotel/gb/glasgow-central-apartments.en.html?label=socnet_fb_og_h_profile_oneline&aid=339528
Mjög flottar hótelíbúðir sem við verðum á..
En svo ætlum við nú í menningarferð til Edinburg í leiðinni sko ... og kíkja á einn og einn bar kannski...og
fá mér Starbucks... hlakka svona einna mest til þess !!! Gott kaffi
En þar sem við verðum i flugvélinni á sama tíma að viku liðinni þá hef ég aðeins eitt að segja
Bananabátskorsilettsslúðursskotapils that´s not bad !!!!
En allavegann 6 dagar !!!jösssss

ísabella fimm ára......

Tuesday, October 25, 2011

Bieber fever.....

já það ríkir svo sannarlega bíber fíver í Háagerði...Bellan alveg fallin fyrir drengnum... Öll helgin fór í gláp á youtube á myndbönd með kauða og uppgötvaði hún sér til mikillar gleði að hann er kominn með nýtt lag.....jólalag ....jeeeeeeesssss......þetta sumsé ómaði alla helgina að ég var orðin ónæm sko , svo þegar Höddi kom heim á sunnudagskvöld eftir helgardvöl í langtíburtukistan þá fékk hann sko að heyra nýja justin lagið ..jólalagið honum til mikillar gleði :) Hann segir svo við dóttur sína... hvað ert þú eiginlega gömul Ísbella mín svona með mæðutón...Hún lítur á hann hneyksluð..."veistu það ekki ? , ég er 5 ára" Höddi segir þá njahh veistu ég er farin að efast....Hún ríkur þá uppí herbergi , kemur aftur niður með 5 ára kórónuna sína frá afmælinu um daginn og segir "sjáðu bara" Hér stendur Ísabella 5.ára  :)

Monday, October 24, 2011

Glasgow.......

Loksins Loksins Loksins get ég sagt að ég fari í menningar og skemmtiferð til Glasgow í næstu viku!!! þó ég sé búin að vera þar síðustu daga...labbandi um götur í leit að búðum og kráum og hóteli og svona... gaman að google maps  :)

~~~~~
Annars liggur við að maður sé hálf eftir sig eftir letihelgina ...tekur á að vera hundlatur sko  :)

Saturday, October 22, 2011

Letihelgi...

Alger leti helgi í gangi í Háa... Húsbóndinn farin á námskeið í langtíburtukistan og við hin heim að slaka á meðan... þið vitið sund, baka, borða, sofa... pínu sumarbústaðarfílingur,.,,, gripið í spil og svona !! totally yndis...
Annars er talið niður í Glasgow ... jerimías hvað ég hlakka til !! sma auka sumarfrí þar sem mitt var alveg með endemum stutt í ár !! En hef lúmskan grun um að það verði ekki kannski svo mikið slakað samt ef ég þekki ferðafélaga mína rétt :)