Sunday, January 29, 2012

útivist já takk....

..við höfum verið dugleg úti við um helgina...því veðrið hefur verið hrein dásemd svo ekki annað hægt !
í gær byrjaði dagurinn með amerískum pönnukökum og tilheyrandi..svo var gamli blái ræstur og fórum við með börnin og hafstein nokkrar ferðir á sleðanum, við mikla lukku...síðasti sjens í bili til að gera snjóhús svo það var gert að lokinni sleðaferð ...þegar inn var komið beið rjúkandi skúffukaka og heitt kakó (ég sumsé gerði ekki snjóhús :) )
 í dag var tekinn langur göngutúr í blíðviðrinu á hvammstanga... mikið að snjónum hefur tekið upp og því miður var snjóhúsið frá í gær horfið.... en það er óhætt að segja að við höfum tekið góða helgi og nýtt veðrið !!! lov itt
þar sem ég er frekar léleg að nýta mér það virka daga :/
Totally awesome helgi

Tuesday, January 17, 2012

Fallegur sunnudagur...


Fallega ísabellan mín á fallegum sunnudegi....

og fallegi Helgi minn á fallegum sunnudegi...
og bara svo við þið vitið það þá Hvammstangi bezti staður í geiminum á svona fallegum sunnudögum sem þessum... fórum í góðann 2ja tíma göngutúr fjölskyldan í fyrrugetna fallega veðrinu og kíktum við í hesthúsahverfinu þar sem marga var fyrir að finna og nutum börnin þess og fengu að kíkja á hestbak.,...
Helgi á hestbaki hjá Lauru ann kennaranum sínum....

og Bella á hestbaki hjá Lauru Ann...


Monday, January 9, 2012

Áramótin góðu !!!





Áramótin voru ótrúlega skemmtileg hjá samsteypunni í ár. Jóhanna,Jón,Ása og Helgi ákváðu að heyðra okkur með nærveru sinni og var það virkilega næs.Þau lofa að koma aftur að ári ekki satt :) Gott að borða,haldið upp á afmæli Helga Hrafns, og borðað meira og horft á skaup og sprengt upp uppi á Brekkugötu eins og venja er !! Þar sem lítið var um partý og böll og samkomur allskonar þá vorum við bara heima og einhverjir litu við þó ekki væri hér auglýst partý enda átti svo ekki að vera sko ... en fínt kvöld engu að síður !
 Börnin að skála meðan þau bíða þess að fleiri komi og setjist hjá þeim á gamlárskvöld
takið eftir töff glerdiskunum sem rósa gerði og gaf okkur !! hrikalega flottir og þægilegir...

Allir að skála...nema ég , ég tók myndina :)

                                              Á Brennunni suður á Höfa með Hafsteini Snæ

Nauðsynlegt að púa eitt svona kvikindi til að tendra í flugeldrunum....
                                                            Ísabella fallega á gamlárskvöld
              Helgi Hrafn flotti á gamlárskvöld, hann elskar flugelda !! Ævar alveg búin að hafa fyrir því :)
Einhversstaðar þarna eru Helgi ,Bella og Hafsteinn með feðrum sýnum og amma Stella að taka mynd lika..

Saturday, January 7, 2012

Afmælisdagurinn mikli

Þessi fallegi strumpur minn er sumsé loks orðin 7 ára og hélt bekkjarafmælið í dag, öllum boðið stelpum og strákum yfir 20 krakkar !!! öll svo prúð og stilt og yndisleg og ekkert vesen !! en ég held að ég muni lika á næsta ári já eða hemm hemm í desember að halda bara afmælið hans fyrir jól.... hann er í kapphlaupi núna við þá sem eru að halda upp á 8 ára afmælin sín!! svolítið vandræðalegt finnst honum....


Fallegu börnin mín í dag..... dásamleg sem þau eru !!! þið hefðu átt að sjá hana leggja bróður sinn í krumlu !!
það var dásamleg sjón....múhahahah það eru sko töggur í henni Bellu minni...