Friday, February 10, 2012

....helgi.....

Já þorrablótsshelgin mín liðin.... þorrablóts helgi fyrir miðfirðina og hrútfirðina og aðra velunnara að ganga í garð.... mín fór aðeins öðruvísi en ég hafði planað...en skítt með það...
Um helgina er júrópartý hjá okkur...þó aðalega Ísabellu sem ELSKAR  söngvakeppnina...búin að liggja yfir lögunum á youtube og kann þau utan af sem og alla dansana við !!! hún elskar dansa og söngva... föstudagskvöld eru inn hér,,,fyrst er það live to dance og svo idolið !!! Uppáhaldslagið hennar á youtube er all the single ladies.... hún kann hann utan af dansinn...veit ekki hversu vel það er !! er að pæla í að fá að taka þetta upp hjá henni á video ..hún er ansi misjöfn með það hvort það má horfa á hana eða ekki svo það þarf að fara varlega í það sko.....Hún getur farið i splitt stelpa sú arna...sú verður vonandi öflug í söng og dansi og fimleikum !!Á meðan bróðir hennar er meiri fótbolta kall og tölvuleikjasjúkur !!!

Góða helgi vinir kærir..hér verða rólegheit...Höddi alla helgina í skólanum svo við erum bara 3 í kotinu í leti...

1 comment:

  1. úff já... þetta splitt er rosalegt!

    Góða letihelgi í Háagerði :)

    ReplyDelete