Sunday, November 27, 2011

Helgarstúss.....

dásemleg helgi... ekki hægt að segja annað..
Föstudagskvöld matarboð á brekkugötu og allir meðlimir sem tilheyra þeirri fjölskyldu saman komnir sem ekki er svo oft ....við öll systkinin og makar og börn og ma og pa auðvitað...og Helgi gisti hjá ömmu og afa..Bellan kom í kósý með foreldrum sínum ..komu svo við gestir góðir sem ekki sjást svo oft bara tvö ein í kaupstað :) Laugardagurinn fór í laugabrauðsgerð en ætli við höfum ekki gert c.a 120 kökur !! besta laufabrauð í heimi vitaskuld... að hætti hefðarinnar var hangikjet og laufabrauðsafklippur um kvöldið á Brekkugötu...
í dag reyndi ég að vera dugleg og tók heimilið í gegn og breytti aðeins í stofunni enda búið að vera eins aaaaalllltof lengi :) Allar seríur sem einhverja hluta vegna fækkar of mikið á hverju ári komnar upp sem og jóladúkur og gardínur ég er svo gamaldags með jólagardínur :) Við börnin skelltum okkur aðeins út í góða veðrið í dag og renndum á sleða í snjónum , sem var bara  hressandi !!! kertaljós,kaffibolli,piparkökur og afslappelsi ríkir nú í minni höll.... Ætla svo að skella mér í aðventustund með börnin í kvöld....
Húsbóndinn hefur í bókstaflegri merkingu verið á kafi í skít alla helgina og alveg misst af síðustu helgi í rjúpu en það skiptir engu við borðum hvort eð er ekki rjúpu á jólunum :)

Góða aðventu kæru vinir !!!

Wednesday, November 16, 2011

Yngst og Elst....



Í afmæli Hödda Guðjbörns s.l helgi er kauði varð 40 tugur  og ég þóttist vera veislustjóri þá var mætt þessi unga snáta.... sem ég hafði ekki séð áður en bara á mynd...hún er krúttbolla með miklar kinnar og er um 10 kg 6 mánaða snót takk fyrir takk !! Hún er dóttir Jón bróður mömmu og heitir því fallega nafni Svanborg Rós
eins og Bogga langaamma heitin..... við vorum sumsé saman komnar elsta og yngsta barnabarn ömmu og afa (svona blóðtengd ef amalía er ekki tekin með í spilið þar sem hún er ári eldri en ég)

stjarnan á enninu á mér er í tilefni þess að ég var stjarna kvöldsins..... fnje fnje fnje :)

Þoka froka....

í þessari drungalegu þokufroku sem var í dag langaði mig helst af öllum að vera heima uppí sófa undir teppi við kertaljós og kósýheitt jafnvel splæsa mér í heitt súkkulaði og glápa á þætti  !! í staðinn var ég svo sem ekkert á mjög svo verri stað :) ég var í vinnuni ..... afgreiða lyf og annað stöff.... tók upp jólagjapakkningar með allskonar fínum ilmum annaní... og bætti við nýjum ilmum í safnið okkar... og von er á enn meira fíneríi fljótlega
og sem og ENDURBÆTUM á búðinni...þess hlakka ég mest í heimi til !!! vonandi verður það allt til hins betra..
Annars styttist til jóla og er ég farin að huga að jólagjöfum og komin með hugmyndir fyrir flesta en það er mun betri árángur en oft áður hjá mér....Er í mestum vandræðum með börninn mín..svo margt margt í heiminum sem mig langar til að gefa þeim !!
hvað gefið þið ykkar börnum ????

Tuesday, November 15, 2011

15.nóvember....

... á sko afmæli í dag :)  stimpilklukkan söng fyrir mig í morgun sem og fékk ég blóm og söng í vinnuna í viðurvist fullt af kúnnum...bara gaman að því ..roðnaði fyrir öll blómstrin :)
En takk kærlega fyrir allar kveðjurnar, smsin ,símtölin, komurnar og gjafirnar...
Eeeeelska að eiga afmæli :)

Monday, November 14, 2011

Helgin....

Helginni var eytt í rvk  og var djammað þriðju helgina í röð ..alveg eðlilegt !!
Á föstudagskvöldið var árshátið grunnskólans sem var  ofsalega skemmtileg en ekki hvað og má
segja að Helgi hafið farið á kostum :) Vorums svo komin til Rvk uppúr miðnætti ..
A laugardaginn var stefnan tekin á bíó... Börnin völdu Sveppamyndina... en ég náttúrulega pældi ekkert í því og fórum við ásamt Rósu og Hafsteini... En mín skellibjalla með litla hjartað var sko ekki að fíla þessa mynd !! ónei fljótlega eftir hlé fórum við bara og skoðuðum kringluna  :) sú var hrædd og myndin að hennar mati alveg hræðileg !! mér fannst hún reyndar bara frekar fyndin það sem ég sá sko ...
Afmæli hjá Hödda Guðbjörns var um kvöldið, mikið stuð og mikil gleði og reyndi ég fyrir  mér sem veislustjóri ..  he hemmm... Endaði ég kvöldið á Spot á greifunum.... Höddi minn var að keppa í fótbolta..football and fun og gekk bara vel ..þeir enduðu á lokahófi , mat og fjöri..og niður í bæ...
Sunnudagur var þynnkudagur , kíktum reyndar í bröns hjá Þórdísi og Kevin McKidd , þar sem systkini HG og makar og börn og pabbi og fjóla voru líka... ekkert smá flott hjá þeim og kósý hjá þeim .
Næstu helgi er svo djamm fjórðu helgina í röð hjá mér hóst !!!! Jeminn ef það ætti ekki bara að panta snöggvast fyrir mig í meðferð !!! en næstu helgi er hittingur hjá apótekum Lyfju á norðurlandi vestra..
ég held að ég nái  bara ekki upp þreytu eftir Glasgow nokkurntímann með þessu áframhaldi ...
Shit held ég sé farin að sofa ....þreyttist um heilan helling bara við að skrifa þetta !!!

Wednesday, November 9, 2011

heilaþoka....

hef verið illa haldin af heilaþoku síðan ég koma að utan..... mánudagurinn var mér sérstaklega erfiður  !!! vá hvað maður getur verið eftir sig ...
í gær fórum við börnin á leiksýningu í félgasheimilinu, Allt í plati frá leikfélagi Sauðárkróks....skemmtu börnin sér rosalega vel !! (ég hefði verið til í að vera heima uppí sófa hó hó hó)
Stefnan er sett á krókinn á mrg í apótekara heimsókn og kíkja á blö í leiðinni.... svo árshátið svo rvk...

Brjalað sem það er alltaf að gera... og viss um það var eitthvað meira í vikunni....

Monday, November 7, 2011

Glasgow.......

var æðis...... Félagskapurinn beztur í heimi,....óendalega mikið hlegið ... mikið drukkið ...mikið verslað...reyndar var nú ekkert of létt verk að finna pöbba eða bjórsölur...en það aftraði okkur ekkert í að fá okkur einn jafnvel fleiri :) Aðeins djamm... he he fullt af skemmtilegum frösum liggja eftir helgina og verða ógleymanlegir !! klassíski
skotinn....Dú jú vont ða restí in ða bag....og dú jú vant seppreit belll ????  he he algerlega meiriháttar óskiljanlegir kauðar !!! En ég á sko eftir að lifa á þessum dögum ,,, eitt af því allra skemmtilegasta sem ég hef gert PÚNKTUR .....
Næst á dagskrá er árshátið hjá Helga Hrafni á föstudag , bruna suður strax um kvöldið , Höddi er að keppa í einhverju fótboltamóti allan daginn og við börnin ætlum að kíkja í búðir (því það er svo langt síðan ég fór sko ) og þau ætla að kaupa sér eitthvað fyrir afmælispeninginn sinn.... og svo ætlum við í bíó og svona kósý heit
svoafmæli til Hödda Frænda...óska eftir matar og kaffiboðum ;) nenni ekki meiri kentökkí ha ha ha....