Thursday, June 16, 2011

Leikhópurinn Lotta á Hvammstanga

Við fórum í gær í fimbulkulda og norðanátt en ekki hvað ...það myndi nú teljast til tíðinda ef að norðanáttin hefið ekki verið til staðar.... en mikið rosalega var gaman og börnin kát... Bellan knúsaði Mjallhvít eftir sýningu eins og svo mörg börn ... hér er svo smá myndashow frá sýningunni :)

Monday, June 13, 2011

Hvítasunnan senn á enda...

...og miiiiiiiiiiiiiikið sem þessi helgi var skemmtileg,frábær og algerlega tímabær og nauðsynleg !!!!
 við píurnar vorum sem sagt saman alla helgina ,við Sandra lögðum af stað á föstudagseftirmiðdag og komum heim í gærkveldi...endurnærðar á sál og líkama!! Út að borða á Ítaliu, tónleikar með Búðabandinu á Prikinu,bæjarrölt,jógatími hjá Ástu,búðarrölt,grillað,frönsk a´la Ásta og ís,bíóferð á Bridesmaids(sem var æði,brjálaðislega fyndin,mæli sko með henni) bæjarrúntur,sofa út,borða endalaust mikið gott, hvítvínssötur, Piknik og Kubb í grasagarðinu í góða veðrinu á sunnudeginum,sól og blíða og 17 stiga hiti, Nauthólsvík að tana og vaða, :) ohhh þetta var bara allt svo yndislegt... Takk kærlega fyrir helgina elsku vinkonur !!!
Þessi svangi fugl vappaði í kringum okkur í grasagarðinum í ætisleit....

Tuesday, June 7, 2011

Fréttir vikunnar

já ætli það sé nú ekki stóra sjómannadagsmálið á Hvammstanga !!! Finn alveg ofsalega til með þeim tveimur sem biðu í sjónum,annar þeirra er jú bróðir minn !! allir vita jú hvernig þetta var, en mér finnst ekki sniðugt að svona mál er komið í fjölmiðla um leið og það gerist..varla hægt að vara ættingja við !! En nóg um þetta ..Sem betur fór betur en áhorfðist ... Minn bróðir er hetja í mínum augum fyrir að halda ró sinni og sinna fjölmiðlum af stóískri ró !!
En nóg um það .....
í Háagerði er komin nýr meðlimur...afskaplega fallegur kettlingur af nafni Brandur ... hann spjallar/vælir stanslaust... eins og þegar hann er einn heima og maður kemur heim þá er eins og hann sé að láta mann  heyra það...horfir stíft á mann og mjálmar og mjálmar..og vill svo láta halda á sér og knúsa :) æji þessi krútt ,  svo eftir 3 vikur kemur gula læðan sem við erum líka búin að panta...hana vantar nafn ef einhver lumar á góðri hugmynd eitthvað sem er í stíl við Brandur án þess þó að vera Branda :)

Um helgina fer húsmóðirin í Háagerði í langþráð húsmæðraorlof !!! jihhhh hvað ég hlakka til ... Dekurhelgi með vinkonum í höfuðborginni.....

Wednesday, June 1, 2011

Elskar frídaga...

...og hver gerir það ekki.... ég spyr.. en allar busy á mínum bæ líkt og alltaf... Helgi hangsar enda skólinn löngu búin...Bellan fer seint í leikskólann enda komin pínu þreyta í mína konu ...Höddi sést aldrei heima... og ég svo sem eiginlega ekki heldur.. Höddi er byrjaður í sumarvinnunni sinni...bændastörfum lokið þetta vorið.
Ég fer í sumarfrí í júlí þegar leikskólinn lokar ...og eiginlega er ég farin að telja niður dagana... er orðin frekar þreytt verð ég að viðurkenna !!
ég skellti mér í Zumbað sem er hér í vikunni ...og mikið sem þetta er skemmtilegt .. vildi svo óska þess að komast í zumba svona 3x í viku,... einhverra hluta vegna er þetta til í tölvunni minni  og er alveg spurning um að fara að geysast um stofugólf og Zumba... því ekki :)  í kvöld förum við í Battle í Zumba... verður gaman
og svo er Bjútíshittingur á eftir,,,sem er bara awesome þar sem aaaaaaaaaaaaaaalof lagnt er síðan síðast sko ...

En frídagur á morgun..jibbíkóla !!